Tönnsluskvísur
06.01.2010 12:09:03 / kristin

Saumó :)

Gleðilegt ár stúlkur! :)
Samkvæmt frú dagbók er saumóinn hjá mér 7.jan. mæting kl:20:30, hlakka til að sjá ykkur.
Kveðja Ragnheiður

» 0 hafa sagt sína skoðun

02.11.2009 08:39:35 / kristin

Saumó 5. nóv

Næsti saumó verður hjá mér fimmtudaginn 5. nóv klukkan 8 :)

Breiðavík 31

Hlakka til að sjá ykkur :)

Kveðja Konný

» 4 hafa sagt sína skoðun

19.10.2009 11:36:29 / kristin

Kaffihúsahitting?

Hæ skvísur, viljiði hittast á kaffihúsi miðv kvöld? Ég kemst þá og Kristín, hvað segiði hinar??
Knús, maggie luke

» 1 hafa sagt sína skoðun

12.10.2009 19:57:21 / kristin

AFMÆLI / BARNAHITTINGUR

Hæhæ stelpur!

Jæja þá fær Konný greyið loksins svar! Nú er það þannig að ég og Eva Karen lendum á klakanum næsta laugardag. Daginn áður verður hún 3ja ára, þeas föstudaginn 16. október. Þá verðum við í Tivolí í Köben. :haha: En í tilefni þess að við séum að koma til landsins og ákkúrat rétt á eftir afmælinu hennar og hún hefur aldrei átt afmæli á Íslandi þá langaði mig að halda smá boð handa henni. Þar með er ykkur öllum boðið í smá barnahitting/afmæli heim til Höddu systur sunnudaginn 18. október kl. 15. Heimilisfangið er Krókavað 7, efri hæð, í Norðlingaholti.

Það verður líka eitthvað smá af minni fjölskyldu hehe ekki láta ykkur bregða :lol:

Að auki vil ég taka fram að það er algjjöööööör óþarfi að vera að kaupa einhverjar gjafir handa stelpurófunni, komum bara saman með krökkunum og eigum góða stund.

Bestu kveðjur,
Magga Lukka

» 5 hafa sagt sína skoðun

11.10.2009 22:23:24 / kristin

Næsti saumó?

Hæ skvísur

Ég var að spá í með næsta saumó, á ég að halda hann á réttum degi 5. nóv eða seinnipartinn í okt? Á að vera einhver hittingur þegar Magga Lukka kemur til landsins, barnahittingur eða eitthvað þannig, eða ætti ég að vera með saumó fyrr?

Kveðja
Konný spurningarmerki :)

» 0 hafa sagt sína skoðun

01.10.2009 00:33:30 / kristin

Saumó hjá Ingu pingu 1.okt .svona rétt yfir átta...

8)8)

Hellú beibís saumó hjá mér 1.okt. svona kanski rétt yfir átta eða bara átta!

Klettagata 8

Hundleiðinlegt að leggja hér hjá mér en það eru stæði við endan á götunni.

Kveðja Inga

» 3 hafa sagt sína skoðun

16.09.2009 16:16:04 / kristin

Saumó 2009-2010

Hæ hæ

Inga 1. okt
Konný 5. nóv
Kristín 3. des Jólasaumó
Ragnheiður 7. jan 
Sandra 4. feb 
Þóra Guðný 4. mars 
Auður 8. apríl 
Esther 6. maí 
Hrefna 3. júní  

Kveðja Frú dagbók :haha:

» 4 hafa sagt sína skoðun

24.08.2009 15:10:44 / kristin

Fyrsti saumó eftir sumarið.

Hæ,
Það verður saumó hjá Hrefnu 2 sep kl 20,00 .
þar sem stelpurnar okkar voru svo duglegar að taka að sér að vera í trúðnaðaráði, þeirra fyrsti fundur og námskeið verður 3 sem hefur verið okkar fyrsti fimmudagur í mánðunum.
Vonandi skiljið þið þetta.:lol:
Endilega tjá sig um þetta.
kv. Hrefna
Ásgarður 61
Leggið bílunum í gesta stæði.

» 9 hafa sagt sína skoðun

16.06.2009 19:57:49 / kristin

Bara að láta vita....

... að ég kem sennilega til Íslands í haust, Hadda systir er að gifta sig 24. október, þannig að spurning með saumó í þeirri viku upp að þeim degi... fröken dagbók??
Knús til ykkar allra,
MaggaLukka

» 3 hafa sagt sína skoðun

26.05.2009 17:51:07 / kristin

Esther

Smá útskýring ég ætla að vera með saumó núna af því að Erica er í bænum hún fer í eyju á föstudag.;)

» 0 hafa sagt sína skoðun

24.05.2009 21:48:22 / kristin

Esther

Saumó á miðvikudag mæting kl:8-8 30 nýbökuðu mæðurnar koma með nýbökuðu snúðana sína, einn nýbakaður snúður á staðnum.:)

» 10 hafa sagt sína skoðun

21.05.2009 18:58:08 / kristin

Hittingur!!

Jæja verður ekki að fara að ákveða hitting með Ericu???
Smá hugmynd hvernig væri að Esther hefði saumó í næstu viku og þær sem eru með litlu krílin kæmu með þau með sér???
Þá er þetta ekki eins margt og ef við kæmum allar með börnin??
Endilega að segja sína skoðun og koma með hugmyndir:)




Kv Auður

» 3 hafa sagt sína skoðun

14.05.2009 20:32:06 / kristin

Vantar einhverjum vinnu??

Sælar skvisur... Loksins hendir madur einhverju hérna inn. Ég var ad tala vid hana Ölmu og thad vantar tanntækni hjá Gunnari Leifs og Vilhjálmi. Hind er ad fara í barneignarfrí og ein sem er í barneignarfríi núna ætlar ekki ad koma aftur, svo ad teim vantar helst núna strax í júní. Svo ad ef einhver af ykkur er ad leita eda vitid um einhverja ad tá getid tid slegist um ad sækja um hehe.. tær sem hafa unnid hjá honum hafa verid ánægdar og fá ad gera mjög mikid.
En annars er allt fínt ad frétta frá danaveldi,, og innilega til hamingju med nýfæddu börnin :) knús til ykkar..

kv Lísa

» 0 hafa sagt sína skoðun

05.05.2009 10:03:05 / kristin

FTAT fundur og út að borða:)


Sælar allar saman:)

Eigum við að skella okkur út að borða fyrir fundinn, hann er klukkan 8 á Grand hótel, væri þá ekki tilvalið að fara út að borða klukkan 6 eða hálf sjö??
Hvert langar ykkur að fara að borða??

Kveðja Auður...

» 11 hafa sagt sína skoðun

30.04.2009 22:57:32 / kristin

jæja

nú er komin að því ég verð up á landi siðustu 2 vikur í mai eða frá 15 maí, væri gaman að ná að hita ykkur........

kossar
erica

» 5 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 29